Einar Logi & Anna Teresa & Óskar Arnór

SWEDEN

09.10.2008 08:01:09 / einaroganna

Á maður að nenna því

Já á maður að nenna að byrja bloggar aftur! Vonandi við stefnum allavega á það og það verður bara að koma í ljós hvað gerist !

Sjáum til hvort að einhver nenni að skoða þetta en ég hef engan tíma til að skrifa núna lillinn er vakandi þannig að
heyrumst bara sem allra fyrst

kv: kóngafólkið í sweden 

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 21:19:09 / einaroganna

Þokkalega sko....maður verður að fara að bæta sig !!

Já ég get ekki sagt annað en að maður er búin að vera lélegur, það er ekki búið að koma blogg í viku ! en það er samt nóg annað búið að vera að gera en að sitja fyrir framan tölvuna ! Ég ætla allavega að reyna að segja frá seinustu dögum í eins fáum orðum og ég get svo að þetta verði ekki allt of langt...

Sunnudagur: Við kíktum eins og ég var búin að segja á leik hjá Gummerbach og unnu þeir hann að sjálfsögðu, við sáum reyndar ekki mikið af honum þar sem að allt var orðið fullt þegar að við komum og þurftum við standa. en eftir leikinn hittum við Gulla, Gauja og Alla og var það bara snilld...

Mánudagur: hann var tekin snemma og drifið sig til KÖLN sem að stóð alveg fyrir sínu, illa gaman að versla þar. Eva náði að versla alveg ágætlega mikið og leist henni bara mjög vel á þetta held ég. Hittum við svo Gulla, Brynju og Arnar Elí þar sem var náttúrulega bara snilld, alltaf gaman að hitta íslendinga og ekki vera þegar maður þekkir þá. Röltum meir með þeim og fengum okkur svo að borða á Pizza Hut sem að klikkar aldrei ! Bara snilldar dagur þar að baki...

Þriðjudagur: Við Eva skelltum okkur í IKEA og gátum eytt smá peningum þar... keypti nokkrar nauðsynir fyrir eins og handklæði og meira dót, kíktum svo aðeins í bæinn líka þar sem Eva verslaði eitthvað !!

Miðvikudagur: Fórum til Osnabrück öll 3 að versla og keypti ég mér peysu og sokkabuxur fyrir svona bumbur eins og mig ! Eva gat að sjálfsögðu verslað eins og alltaf ! Komum sátt heim með feita poka og fleira...

Fimmtudagur: var bar tekin rólega þar sem að allir voru dauðþreyttir auk þess sem að smá kvef var komið í hópinn  ! Við Einar byrjuðum að pakka inn jólagjöfum, erum semsagt búin að kaupa allar nema 2, bara snilld það að vera búin með þennan höfuðverk svona snemma ! Nú er bara að bíða með að komast heim. Ég litaði hárið á mér líka, það varð aðeins dekkra en ég ætlaði mér en er samt mjög flott finnst mér !

Föstudagur: Við tókum honum líka bara rólega eftir að hafa sofið aðeins út, Einar var snemma á æfingu og við Eva kíktum í föndurbúðina og aðeins á kaffihús á meðan og svo þegar að Einar kom heim þá bauð hann okkur á Kínverskan stað að borða og var það ekkert smá gott... átum allavega öll mjög vel þar ! svo var bara skellt DVD í tækið og sofnað að sjálfsögðu yfir því. Einar segir að við báðar sofnum við allt , alveg ótrúlegar...

Laugadagur (í dag): Einar elskan mín var að keppa í dag og gekk þar bara vel hjá þeim þar sem að þeir unnu ! Við Eva skelltum okkur enn einu sinni í bæin og náði Eva enn aftur að versla nóg að dóti, keypti sér allavega illa flott úr ! Við eyddu allavega ágætum tíma þar, keyrðum svo heim og keyptum okkur bara Subway í matinn til heiðurs Ingu Bringu... og núna erum við bara eitthvað rólegar, það er ömulegt verður úti, illa miklar eldingar áðan og við fengum næstum því hjartaáfall ....

En annars er nú ekki mikið meira að gerast hérna sem að ég get sagt frá ... en ég ætla að fara að skemmta Evu litlu... kannski við kíkjum á djamm í kveld ! Þannig að hafið það gott og farið varlega þið sem ætlið að skemmta ykkur ...:P:P:P

Kv. Anna Teresa og bumban sem stækkar ört !


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 14:19:56 / einaroganna

Gestur kominn

Já þá hefur maður ákveðið að henda inn hérna nokkrum orðum, ég er alveg dottin úr þessu bloggstuði en maður verður að standa sig fyrir þá fáu sem að lesa hérna...

Allavega þá er gestur komin og er það engin annar en Eva Morales a.k.a TÓTA. Hún kom semsagt á föstudaginn, við náðum í hana á lestarstöðina í Münster. Það er bara snilld að fá hana í heimsókn þessa elsku, það hefur aldrei klikkað þegar að hún mætir á staðinn. Hún kom færandi hendi eins og alltaf með gjöfum frá henni og mömmu, mætti með íslenskt nammi, seríos og kókó puffs, fiskibollur, séð og heyrt, mysing og margt fleira. Markmiðið er að hafa það gaman meðan hún er hérna hjá okkur, það ætti nú örugglega ekki að vera vandi !!

Við fengum líka smá pakka frá Stekkjó...fengum blöð og fullt af einhverjum uppskriftum og svo var líka einn pakki sem að við vissum ekki af og í honum var Bubbi 06.06.06 og kom þetta okkur skemmtilega á óvart...hlökkum mikið til að setja hann í tækið.

Í gær var bara kíkt aðeins í bæinn hérna og sýnt evu þessa stórborg sem að við búum í NOT.... og fengið sér kaffi. Við Eva slöppuðum svo bara af þangað til við fórum að horfa á hann Einar minn keppa. Það fór ekki eins og það átti að fara og Einar á eflaust eftir að segja ykkur meir frá því...  Við ætluðum svo að skella okkur á djammið en það var rosaleg þreyta í mannskapnum að það var bara farið heim spilað smá Playstation og svo bara DVD í tækið og má segja að ég og eva  höfum sofnað áður en að það var ýtt á Play...  "gaman fyrir Einar"

Í dag er náttúrlega lítið að gera þar sem að allt er lokað og læti... en ég skellti mér í feitan 30 mínútna göngutúr áðan á meðan Einar var í ræktinni... Svo kl 5 erum við að fara á handbolta leik  þar sem að Gummersbach er að fara að spila við eitthvað skítalið hérna rétt hjá, en það verður stemming að fá að sjá gauja og alla spila.

Svo á morgun er stefnan sett á KÖLN þannig að ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra, en ég segji ykkur á  morgun frá því hvernig var þar... en hafið það gott þangað til næst !!

Kv. Anna Teresa Morales

P.S. Inga elskan... við erum búin að fara í föndurbúðina, en ekki búnar að versla neitt en það verður bætt þegar við förum næst.... þið þurfið að standa ykkur í skólanum !!


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 20:47:14 / einaroganna

Veturinn alveg að fara að koma...

Já eins og ég sagði hérna í fyrirsögninni þá get ég ekki sagt annað en að Veturinn sé á leiðinni hérna til Emsdetten. Það er ískalt hérna og eiginlega það eina sem að vantar til að það sé hægt að kalla þetta vetur er snjórinn...

Ég vaknaði allavega við það í morgun að það var brjálað rokk og rigndi eins og ég veit ekki hvað.. sáum við svo í hádegisfréttunum að það er bara allt að gerast í Deutschlandi. Brjálað veður um eiginlega allt land., farið að flæða sumsatðar og brjálaður vindur, og svo var byrjað að snjóa í suður-Þýskalandi og ég er að segja ykkur að ég bjó þar í 2ár og ég sá varla snjókorn á þeim tíma sko...

Einar spilaði við Lemgo í gær og var það bara ágætt, nema kannski ekki alveg spenna í gangi þar sem að leikurinn endaði  24-41. Ég var samt mjög sátt þar sem að Einar minn stóð sig bara mjög vel og svo fékk ég að sjá yndið mitt hann Kehrmann sem að er bara flottur sko... hann labbaði einu sinni framhjá mér og ég er að segja ykkur að það munaði engu að ég stykki bara á hann...:haha::haha::haha:

Í gær var líka Halloween hérna og ekkert smá krúttlegt að sjá lítil börn í einhverjum grasker búningum og svoleiðis... en í dag var frídagur hérna í þýskalandi og eins og alltaf þá er allt lokað og ekkert að gera en við Einar erum sko búin að vera að brasa eitthvað hérna heima hjá okkur ! Ég kláraði bókina sem að ég var að lesa, Einar lagaði til í fataskápnum sínum svo tókum við okkur til og breyttum aukaherberginu okkar sem að var tölvuherbergið en núna er það Tölvuherbergi/ Gestaherbergið og verður seinna barnaherbergi ! Við ekkert smá dugleg löguðum til í öllu og hentum fullt af einhverju drasli og erum bara mjög sátt við útkomuna... leyfum ykkur að sjá árangurinn í myndum seinna...

Svo er Eva systir að fara að koma um helgina og hlakka ég ekkert smá til... hún verður semsagt fyrsta sem að fær að fara inn í nýja gestaherbergið og sofa þar...

en ég er að hugsa um að halda áfram að læra... er búin að vera illa dugleg ! auk þess sem að maður kíkir með öðru auga aðeins á meistaradeildina... Þannig að hafið það gott og við biðjum að heilsa

kv. Anna Teresa Morales


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 17:14:09 / einaroganna

Afmæli - Afmæli...

Í dag á hún Margrét mín elskulega móðir afmæli ...

Innilega til hamingju með daginn elsku besta mamma í heimi...

Hafðu það sem allra best í dag því að þú átt það mest skilið....

Knúsa þig þegar að ég kem heim til Íslands...

Love you af öllu hjarta og sakna þín ekkert smá ...

KV. Anna Teresa og Einar Logi

P.s. við erum búin að gera smá barnaland síðu...ef þið viljið skoða !


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 19:14:38 / einaroganna

Loksins blogg hjá kallinum

Jæja það er víst löngu kominn tími á það að ég bloggi nú eitthvað inná þessa síðu og ég þykist vita það að æstir bloggaðdáendur mínir hafa beðið spenntir eftir nýju bloggi frá kallinum, en hefur Anna verið að benda mér á það alloft undanfarið hvað það sé langt síðan að ég bloggaði og að það væri kominn tími á það að ég myndi blogga.

Handbolta hliðin á lífinu gengur svona upp og ofan þar sem að við höfum ekki byrjað tímabilið alveg eins og við æltuðum okkur og sitjum við rétt fyrir neðan miðja deild, þannig að þá veistu það Óli þar sem þú hafðir orð á því um daginn að fá að sjá stöðuna í deildinni hérna inná blogginu, þá læt ég þetta nægja Óli minn, skelli inn töflunni við betra tækifæri þegar að við erum komnir ofar í deildina ;) Annars er ég að komast betur og betur inn í liðið og hef spilað síðustu tvo leiki allan tímann og staðið mig vel og sett 4 mörk í hvorum leik, og var fyrri leikurinn við Andrius Stelmokas og félaga í Berlín en þeir eru taplausir á toppi deildarinnar. En Stelmokas var annars mjög hress og áttum við gott spjall eftir leik.

Svo núna á þriðjudaginn verður stórleikur og íslendingaslagur hérna á okkar heimavelli þar sem Lemgo er að koma með þá Loga og Ásgeir innanborðs að spila í bikarnum við okkur. Ekki hægt að segja annað að það sé tilhlökkun fyrir þann leik, og ætlum við okkur að ná toppleik og gera okkar besta til að standa í stórstjörnunum frá Lemgo ;) Annars er hópurinn frekar þunnskipaður þessa dagana þar sem nokkrir eru frá vegna meiðsla og hefur það líka bitnað á leik liðsins undanfarið, en nóg um það við ætlum okkur að standa okkur vel í ljónagryfjunni okkar á þriðjudaginn.

En að hinni hliðinni á lífinu, en hún gengur bara mjög vel, bumban okkar stækkar dag frá degi (ekki það að mín bumba sé að stækka neinei hún stendur bara í stað, aðallega bumban hennar Önnu sem stækkar enda eðlilegt þar sem rassálfurin stækkar ört þessa dagana) og gengur allt saman mjög vel í þeim efnum :) Fórum í skoðun um daginn eins og Anna var búin að segja frá, en ég verð að koma að einu úr þeirri skoðun eða reyndar tvennu, til að byrja með var Anna í sónar og ég var rosa spenntur að sjá, læknirinn var búin að sýna okkur lærlegginn og höfuðið og svoleiðis og svo var hún að sýna okkur eitthvað sem kallinn var ekki alveg viss hvað var en ég hugsaði með mér að þetta væri nú einhver hluti höfuðsins og ætlaði að fara segja Önnu hvað ég væri að hugsa þegar að læknirinn sagði: "Hérna sjáið þið magann" 8|8|, kallinn ekki alveg með þetta á hreinu;);), þannig að ég skil ekki alveg hvernig sumir sjá tippi þegar þeir eru hjá lækni í sónar, það er alveg á hreinu að ég á ekki eftir að sjá það, ef það er á annað borð þarna. En að hinu sem að ég ætlaði að koma að, en það var þegar að læknirin sagði við okkur að þetta væri fallegt barn:$:$, ég er ekki alveg að ná því hvernig hún fór að því að sjá það, en greinilega sem hún finnur á sér eftir að hafa séð foreldrana, enda eru þeir ekki af verri endanum, hreint út sagt gullfallegir þannig að barnið hlýtur að vera fallegt líka :haha::haha:

En svo tókst Önnu um daginn, það sem ég taldi nánast ómögulegt fyrir nokkrum árum, en það var það að ég skyldi ná að horfa á allar seríurnar af Friends. En það tókst núna um daginn hjá mér, en við Anna byrjuðum að safna Friends fyrir um það bil einu og hálfu ári síðan og núna eigum við allar seríurnar og náði ég loksins að klára að horfa á alla þættina og ekki get ég sagt að ég hafi orðið fyrir vonbrigðum með þá, þar sem þetta eru algjör snilld og skil ég ekkert af hverju ég horfði aldrei á þetta á sínum tíma þegar þetta var í sjónvarpinu.

Svo er bara spurning um að fara safna David Hasselhoff og félögum í Baywatch næst.

En læt þetta nægja í bili,

 

Einar Logi


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 17:44:42 / einaroganna

Fátt að gerast..

Já ég ætla að hafa þetta blogg stutt í dag þar sem að ég hef ekki  mikið að segja...

Það er allt gotta að frétta hérna af okkur frá Emsdetten.

Í kvöld á að byrja að skrifa jólakortin, ég veit að þið haldið eflaust að við séum eitthvað klikk en við nennum ekki að eiga þetta eftir og ákváðum því bara að ljúka þessu af sem fyrst. Búinn að kaupa blöð, límmiða , lím og margt fleira til að geta föndrað hérna saman !  Við ætlum að reyna að klára allt sem tengist jólakortum og gjöfum mjög snemma í ár, svo að við getum sent eitthvað með Evu systir...

Það fer nú að styttast í að hún mæti á svæðið og hlökkum við bara til þess tíma... það hefur aldrei klikkað þegar að Eva mætir í heimsókn...

en ég er að hugsa um að fá mér aðeins að narta... uppáhaldsþátturinn minn í sjónvarpinu er að byrja og ég verð að fylgjast með eins og önnur fimmtudagskveld...

Þið verðið að horfa á þetta mynband... ef að þessi er ekki krútt þá veit ég ekki hvað

http://www.youtube.com/watch?v=tVkiu9uIR6o

en hafið það gott og við biðjum að heilsa öllum

kv. Anna Teresa og Co


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 17:21:59 / einaroganna

Nóg að segja frá á þessum dýrindisdegi....

Já þá helgin búin og held að það sé komin tími á blogg hjá okkur þar sem að það nú alveg fullt búið að gerast síðan að ég skrifaði seinast...

Á föstudaginn kom Fa í heimsókn til okkar og skelltum við okkur á PINK-tónleika sem voru by the way geggjaðir... Pink er bara svöl og geðveikt show hjá henni ! Mæli sko með því að allir skelli sér á tónleika með henni...Við sáum líka mestu rigningu sem að ég veit um á leiðinni á tónleikana... ég get ekki einu sinni lýst henni en hún meiddi... og svo þurftum við að bíða á bílastæðinu í klukkutíma eftir tónleikana og var það eina sem var ekkert mjög gaman en við Fa hækkuðum bara í græjunum og reyndum að hafa gaman á meðan...

Ég og Einar tókum laugardaginn nú snemma og skelltum okkur í búðina og á markaðinn að versla eitthvað hollt og gott og leyfðum Fa að sofa aðeins út... svo var skellt sér til Münster þar sem að það var svona lítið tívóli þar í bænum og röltum við þar í gegn og fengum okkur eitthvað gott að narta....svo kíktum við aðeins í búðir, ég verslaðir mér einn bol svona fyrir svona bumbur eins og mig og einn lítin sætan tígragalla á litla rassálfinn...

Um kvöldið elduðum við svo Fajitas og var það ekkert smá gott... svo lágum við Fa eins og einhverjar flatkökur að horfa á DVD og borðandi smá óhollt með því ... Við vorum ekki aveg í skapinu til að kíkja eitthvað út en við bætum það upp seinna.... Fa fór svo heim á sunnudagsmorgun og vill ég bara þakka henni fyrir heimsóknina það var illa gaman að fá þig... hlakka til að sjá þig næst...:haha::haha::haha:

Einar átti leik á Sunnudaginn við Fücshe Berlin þar sem að Stellmokas er að spila... Þeir töpuðu með einu marki eftir að hafa verið yfir allan leikinn, það er eiginlega hægt að kenna dómaranum um þetta því að þeir byrjuðu á því í lokinn að dæma eins og fífl  ! Stellarinn var alltaf jafn góður en Einar lét hann aðeins finna fyrir sér.. með því að fiska han útaf og svona. Einar spilaði allavega ekkert smá vel... það var illa gaman að horfa á hann því hann var svo góður... setti 4 mörk og þegar hann skoraði eitt þeirra þá hoppaði hann svo hátt yfir Stelmokas að ég hef aldrei séð annað eins... hann ætlaði greinilega ekki að láta hann verja boltan frá sér í vörninni...!!

Mánudagurin var bara tekin rólega, ég lærði það sem að læra þurfti og röltum við avo bara aðeins um bæinn og gerðum þá hluti sem að voru á dagskrá hjá okkur... maður varð að hvíla sig aðeins eftir þessa helgi !  Horfðum aðeins á Friends... erum alveg að verða búin með alla þættina ! Svo eldaði Einar þessa dýrindis máltíð handa mér víst að það var frí á æfingu hjá honum , hann fór reyndar í einhverja sprautu gegn einhverri flensu...

Í dag fórum við svo í mæðraskoðun, þetta var semsagt önnur skoðun okkar hérna úti ! Það gekk allt bara mjög vel. Hún sagði að barnið væri heilbrigt og stækkaði mjög eðlilega... Það var nú samt eitthvað rólegt í þessari skoðun og var ekkert að brölta eins og seinast, við fengum en eina sónarmynd sem við ætlum að reyna að fara að skanna inn og leyfa ykkur að sjá... Ég semsagt fer svo bara næst í skoðun þegar að ég kem heim til Íslands, en ég þarf reyndar að koma eftir tvær vikur og láta mæla járnið í mér þar sem að það er mjög lágt sagði hún og ef það fer ekki hækkandi þarf ég í einhverja sprautu og eitthvað ...Maður á semsagt að vera eitthvað um 12 eitthvað en ég er bara um 9 ... sem er víst mjög lágt. En annars er allt gott bara og barnið ætti að koma í byrjun Mars...

Í dag hefði hann elsku besti pabbi minn orðið 55ára og vil ég bara óska honum innilega til hamingju með afmælið ! Ég sakna hans ekkert smá mikið og væri svo til að hafa hann hjá mér til að segja honum hvernig allt gengur með bumbuna mína, en ég veit að það er hann sem að passar okkur ! Vill bara að hann viti hvað mér þykir vænt um hann og ég veit að hann var með mér í dag hjá lækninum ! Elska þig af öllu hjarta :D

En ég ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra svo að það nenni nú einhver að lesa þetta hjá mér... ég þarf líka að fara að læra ! en endilega kvittið og takið þátt í skoðunarkönnunni en samt bara að kjósa einu sinni...

kv. Anna Teresa og rassálfurinn


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 13:11:09 / einaroganna

PINK tónleikar og Fa að koma...

Ég ákvað að henda inn nokkrum línum hérna áður en að ég fer að ná í Fa á lestarstöðina... ég hlakka ekkert smá mikið til að fá hana þar sem að við vitleysingarnir getum nú léttilega brallað eitthvað saman....

Ég og Fa erum semsagt að fara að skella okkur á PINK -tónleika í kveld og hlökkum við illa mikið til þeirra... ég hlusta nú ekki mikið á Pink en maður þekkir bestu lögin og svo er hún víst með geggjað show alltaf þannig að þetta verður spennandi...

Seinustu daga höfum við bara reynt að hafa það gott , kíktum í sund á miðvikudaginn og var það ekkert smá gott utan við það að vatnið var pínu kalt og það var svolítið mikið af klór í vatninu en annars mjög gott...

Erum að missa okkur yfir Friends... einari finnst þetta ekkert smá gaman og vorum við að byrja á 9 seríu þannig að það er bara 10 svo eftir það ... get ekki sagt að mér leiðist að horfa á þá :D

Fékk líka spólu og blöð frá mömmu áðan... og mysing, ég er með algjört æði fyrir mysing eins og er, þó að mér hafi alltaf fundist hann mjög góður

Ég setti líka inn smá skoðunnarkönnun þannig að endilega takið þátt....

en ég er að hugsa um að fara að drífa mig...  þannig að hafið það gott...

kv. Anna Teresa


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 08:26:57 / einaroganna

er ekki að nenna að blogga...

Já ég hef ákveðið að henda smá hérna inn fyrir ykkur sem eruð að lesa en það er nú ekki mikið að gerast hérna og hef ég hreinlega ekki nennt að blogga...

Seinustu laugadag ætluðum við að skella okkur til Amsterdam en ákváðum að geyma það þangað til seinna... Þar sem að Eva systir fer alveg að koma og þá ætlum við að reyna að fara til Köln að gera sá jólainnkaup.... en í staðinn bökuðum við bara eplaköku og vöfflur handa okkur og þá kom einn vinur hans Einars eins og kallaður... hann hefur fundið lyktina þegar hann var að labba hérna framhjá!!!

Á sunnudaginn var Einar svo að keppa og gerðu þeir jafntefli ! Einari gekk bara vel og vonandi verður það þannig áfram hjá honum... þar sem að næsti leikur er á móti Stelmokas og Co og eru þeir í efsta sætinu...! Vonandi bara ná Einar og þeir að vinna það ...

Á Mánudaginn gerðum við heiðalega tilraun til að fara í sundlaugina hérna og að sjálfsögðu var lokað... eins og alla aðra mánudaga ! það mætti halda að það væri ekki nóg að sunnudagar væru frídagar hérna í þýskalandi ! Við ætlum að gera aðra tilraun á eftir en það opnar ekki fyrr en 1 :D

Já þið ykkar sem að hafið ekki séð Hostel þá mæli ég með því að þið leigjið hana...strákarnir voru alltaf að segja mér að horfa á hana en ég þorði því aldrei en svo ákváðum við Einar að kíkja á hana og var hún bara hörkugóð, reyndar mjög ógeðsleg líka :S:S:S  en karakterinn hann Óli var ekta íslendingur, við hlógum ekkert smá af honum því að svona eru sumir karlmenn á íslandi...alveg ótrúlegir sko :haha:

Svo er það Pink-tónleikarnir á föstudaginn og hlakka ég ekkert smá mikið til, þar sem að ég fékk þær fréttir að Ingifúsi vinur minn í Lúx ætlar að koma með mér á þá eða það er um 90% líkur... Þetta verður algjör snilld, og ætlar hún svo að gista hjá mér eina eða tvær nætur... gaman að fá vinkonu í heimsókn og ættum við ekki að vera í vandræðum með að skemmta okkur...!!

en jæja ég er hætt þessu bulli... veit ekkert hvað ég á að segja meira... nema takk fyrir kveðjurnar þið öll... gaman þegar þið kvittið hjá okkur... og El Torro það er bara að drífa sig út, og takk fyrir kommentin á íbúðina...:P

kv. Anna Teresa Morales


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 18:02:23 / einaroganna

Það á ekki að ganga af manni...

Já þá hef ég ákveðið að blogga þó svo að það sé nú ekki mikið í fréttum hérna  ! Meðgangan er semsagt hálfnuð og vona ég að betri helmingurinn sé eftir þar sem að sá fyrri hefur ekki verið sá besti en er samt nú þegar  orðin mun betri...

Einar er eins og er á æfingu og svo er videó fundur hjá honum þar sem a hann er að fara að spila á  Sunnudaginn og þarf að keyra langt í burtu eins og vanalega en ég þarf hvort sem er að læra aðeins og svo sendi mamma mér líka videó spólu um daginn og ég held að maður muni bara horfa á hana og hafa það gott...

Í dag skruppum við bara í búðina að versla í matinn og svo var bara tekið því rólega.. ég náði heldur ekkert að sofa svo vel í kvöld ! Ég held að ég hafi vaknað á klukkutíma fresti og ég er ekki að djóka með það sko ... Ég sofnaði allavega við það að Einar var með flugnaspaðann í hendinni þar sem að það var ein að pirra okkur !!

Ég var semsagt í fyrri nótt bitin svona af flugum, og við höfum komst að því að ég er örugglega með ofnæmi fyrir því þar sem að ég er öll úthlaupin á höndunum þar sem að ég er með bit.. maður fer bara að sofa í kraftgalla með þessu áframhaldi sko... þetta er samt svo alveg týpískt ég að það er ekki eðlilegt !!! en þetta lagast vonandi sem fyrst...

Ég er að hugsa um að hafa þetta ekki lengra þar sem að ég er eiginlega alveg orðin tóm með það hvað ég á að segja og að hugsa um að skella mér í sturtu þar sem að ég tók með einn feitan göngutúr áðan til að reyna að vinna aðeins upp þolið sitt sem að maður er búin að missa í sumar með því að vera svona veikur... og svo er bara að fara að elda fyrir karlinn...

Þannig að hafið það gott og góða helgi !!!

KV. Anna Teresa


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 19:22:21 / einaroganna

komin tími á klippingu...

Það er nú ekki mikið að gerast hérna í Emsdetten eins og er... við vissum ekkert hvað við áttum að gera af okkur í dag því að við vöknuðum eitthvað svo snemma, dagurinn var eitthvað über langur hjá okkur !!! við fundum allavega fyrir hreyfingu hjá litla rassálfinum okkar í dag og er það bara gaman að því ... bumban stækkar á hverum degi og næsta skoðun er 24. okt og hlökkum við mikið til...

Karlinn skellti sér í klippingu enda komin tími til, hann var farin að vera með sítt að aftan ! fundum eina stofu hérna rétt hjá sem er ekkert smá flott og það er bara alltaf allt fullt þar... Þannig að maður þarf bara að panta með smá fyrirvara...

En akkúrat meðan við vorum í klippingu þá kom pósturinn með pakka frá mömmu og við rétt misstum af honum , en við náum í hann snemma í fyrramálið ! alltaf gaman að fá pakka að heiman, videó spólur og blöð og eitthvað meira skemmtilegt...

Við komust líka að því um daginn að bæði leikmenn og makar fá afslátt í svona snyrtivöru/ilmvatns búð hérna og er það bara snilld... Einar keypti sér nýtt ilmvatn og Anna verslaði sér eitthvað rándýrt andlitskrem ( því að  hormónarnir eru alveg að fara með Önnu eins og er) Anna  ætlar svo að kaupa sér eitthvað gott ilmvatn þegar hennar er búið, þar sem að hún fékk fullt af einhverjum prufum líka!!!

Keyptum okkur líka 8 seríu af Friends í dag þannig að við eigum bara eftir að kaupa 10 og þá erum við komin með allt safnið ...Einar er semsagt bara komin á 7 seríu og veit ekkert hvað gerist eftir það en Anna er löngu búin að sjá þetta allt, en eins og flestir þá er hægt að horfa endalaust á friends...bara snilldar þættir það sko! Okkur langar reyndar geggjað mikið að fara að safna Baywatch á DVD...það eru snilldarþættir með Hasselhoff og Pamelu og allan pakkan !!!

en ef einhver hefur áhuga þá á Anna enþá auka miða á PINK- tónleika 20 október...bara að láta vita....allir sem hafa áhuga eru velkomnir með  !!! eða þar að segja einhver 1 heppinn...

En það er komin tími á kvöldmat þar sem að karlinn kom snemma heim af æfingu... þannig að hafið það gott og við heyrumst seinna...

kv.Anna Teresa og Einar Logi

P.S. við erum búin að finna nýtt sítrónuvatn fyrir ykkur sem að stefnið á heimsókn til okkar, það er eiginlega alveg jafn gott !!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 17:20:39 / einaroganna

Afmæli...

Elsku Svana systir mín er 30 ára í dag og er það mikil áfangi myndi ég nú segja sko...

Innilega til hamingju með daginn Svana mín og hafðu það sem allra best í dag... vona að þú hafir fengið sendinguna frá okkur Einari en alvöru pakkin kemur þegar við komum og hittum þig... værum alveg til í að vera heima núna og halda feitt afmæli með þér...!!!

Það Allavega til hamingju með 30 árin og vonandi verða næstu 30 jafn skemmtileg hjá okkur !!! Þetta er allavega merki um það að við systur erum að eldast :haha::haha::haha: það eru nú samt bara 20 ár síðan þú grést úr þér augun afþví að ég fæddist þannig að við getum allavega glaðst núna !

Ástarkveðja frá okkur hérna í Þýskalandi

Anna Teresa og Einar Logi


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.10.2006 11:41:31 / einaroganna

Alltaf eitthvað að gerast...

Já það er nóg að frétta héðan frá Emsdetten.. Það styttist alltaf í næsta gest okkar sem að kemur eftir 30 daga en það er nú samt pínu langt í það en verður vonandi ekki lengi að líða !

Við tókum daginn snemma í dag til að þrífa íbúðina okkar og er hún eins og ný, við tókum semsagt hálfgerða jólahreingerningu á eldhúsið það var farið inn í alla skápa og utan á líka. Ég held að það verði aldrei svona hreint aftur... svo ætlum við að klára að hengja upp myndir sem að við eigum eftir og tvær hillur ! Þannig að þá er ekki mikið eftir að gera í þessari íbúð...

Ég ætlaði nú að fara að læra núna víst að Einar skrapp í ræktina en er ekki alveg að nenna því sko...það er líka ekki  mjög góður dagur í dag hjá mér og bumbunni... það er einhver stríðnispúki þarna inní mér því að hann er ekkert að vilja að leifa mér að líða vel... þó að ég sé nú búin að skána mjög mikið... okkur langar samt mjög mikið að fara að finna spark og bíðum við spennt eftir því...:haha:

Einar var að keppa í gær og töpuðu þeir... alveg ótrúlegur leikur ég held að ég hafi aldrei séð svona lélega dómgæslu og ég meina það ! Einar á eflaust eftir að segja meir frá leiknum, þó það sé nú ekki frá miklu að segja ! Það var allavega eitthvað party eftir leikinn á einhverjum skemmtistaðnum og var það fínt þar... fullt af einhverju fólki reyndar sem að ég þekkti ekkert... en stemmarinn var góður og svo var bara farið heim um 1 leytið og rotast um leið...

Við skelltum okkur svo í gær í daglega göngutúrinn okkar í gær og fór það ekki betur en svo að það byrjaði að hellidemba og við urðum rennandi blaut á 1 mínútu sko .. ekkert smá fyndið. Það var búin að vera sól allan daginn og kom svo sól um leið og við vorum komin heim ! Ekki alveg okkar dagur í það að fara út að labba...

Ég hef ákveðið að deila með ykkur því hversu óheppin ég er búin að vera seinustu daga... það byrjaði á því um daginn að ég ætlaði að fara að setjast í sófann og sneri á mér ökklann þannig að ég flaug á hausinn og náði ekki að hitta sófann, heldur flaug ég á gólfið og beint ofan í þvottagrindina ! þetta var kannski svona móment að það þurfti að vera þarna , allavega gátum við Einar hlegið að þessu en okkur var samt ekki sama því að ég skall beint með bumbuna á endan á körfunni og fann aðeins til en það lagaðist fljótt...

Svo er ég komin  með einhver gríðanlegan verk frá bakinu og niður í læra og ég get stundum ekki setið og stundum ekki labbað... ég er eins og versta fatlafól en við höldum að barnið sé kannski að ýtta á einhverja taug og það leiði svona rosalega niður í læri... og svo vorum við Einar að vaska upp um daginn og ég missti lokið af pottinum og það lenti svona beint á kúlunni á ökklanum og þetta var svona fyndið vont fyrst.. herrðu svo er kellan bara orðin geðveikt marin og bólgin og illa vont að að reka kúluna í eitthvað sko ... það á ekki að ganga af manni, ég er nú ekki vön að vera svona óheppin !!!

en jæja ég ætla að klára að laga til hérna í stofunni því að Tom vinur okkar er að koma í heimsókn... hann ætlar að hjálpa einari að klára að bora allt upp... Þannig að hafið það gott og endilega kvitta hjá okkur, alltaf gaman af því :P:P:P

kv: Anna Teresa


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 21:28:49 / einaroganna

Svínarif

Sælt veri fólkið, allt gott að frétta héðan frá okkur. Við í liðinu vorum boðnir á veitingastað hérna í bænum í gær og á boðstólnum voru svínarif og gátum við borðað eins og við gátum í okkur látið og get ég nú ekki sagt annað en að ég hafi aðeins misst mig því þetta var eitt það besta sem að ég hef fengið lengi. Nú er bara að fara nokkrum sinnum í viðbót og skella sér svo í heimsókn til Heimis í danmörku og gera atlögu að metinu á "all you can eat" staðnum hjá honum.

En að öðru, við í liðinu fengum bensínkort um daginn á æfingu sem gildir á eina ákveðna bensínstöð hér í bæ og getum við dælt fyrir 40 evrur á mánuði. Ég var hinn glaðasti að fá þetta kort en svo sögðu strákarnir mér að við fengum þetta bara af því að ef að við dælum fyrir þessar 40 evrur þá fær liðið skatt til baka en ekki við eins og venjulega þegar að maður dælir og borgar sjálfur, þannig að ég ákvað þá bara að notfæra mér þetta ekki og borga frekar sjálfur þegar ég kaupi bensín og fá skattinn til baka til mín. En svo núna þegar við fengum útborgað þá var búið að taka 40 evrur frá öllum og voru það þessar 40 evrur sem að við gátum dælt bensíni fyrir, það er sem sagt tekið af okkur 40 evrur hvort sem að við dælum eða ekki. Ég hélt að þetta yrði nú bara tekið af launum okkar þegar að við ákváðum að nota þetta bensínkort en nei þá er þetta bara tekið alltaf af manni og fyrir mig sem þarf kannski að kaupa bensín á 6 vikna fresti þar sem að bílinn minn framleiðir bensín frekar en að eyða því og plús það að ég nota hann ekki mikið þar sem ég get labbað flest sem ég þarf að fara þá finnst mér þetta alveg fáránlegt og hvað þá fyrir þá sem eiga ekki einu sinni bíl en það er alla vega einn sem ég veit um í liðinu sem á ekki bíl þá er þetta samt tekið af þeim þó svo að þeir eigi ekki einu sinni bíl, og hann spurði meira segja út í þetta og þá sögðu þeir að hann gæti bara látið pabba sinn eða kærustu sína fá þetta og þau myndu þá bara borga honum 40 evrur fyrir. Þetta gerir liðið til þess eins að það fá skatt til baka til sín sem eru einhverjar 3000 - 3500 evrur á ári. Menn eru ekki á eitt sáttir með þetta og eiga sennilega eftir að vera einhverjir eftirmálar af þessu.

En læt þetta nægja í bili, bið að heilsa

 

Einar Logi


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan